Ráðstefnur og kynningarefni

Við ýmis tækifæri er upptaka góð kynning á starfsemi bæði félagasamtaka, fyrirtækja og stofnanna.  Ég tek að mér upptöku af ráðstefnum, fundum eða margskonar uppákomum.  Með Sony háskerpu upptökuvélum þarf ekki að hafa áhyggjur af lýsingu, þó slökkt sé á ljósum til að sýna glærur.  Stafrænn hljóðupptökubúnaður er tengdur inn á hljóðkerfi ráðstefnusalar til að gera hljóðupptöku sem besta.  Powerpoint glærur fara inn á upptökuna í fullum gæðum.  Texti og annað efni sett inn á upptöku eftir óskum. Einnig er boðið upp á streymi ef þess er óskað. Upptökunni er skilað eftir óskum kaupanda sem hentar bæði heimasíðugerð eða á samfélagsmiðla.